20nóvember
Hversu óþolandi er það að leita í annað skiptis til sama læknis á stuttum tíma, með þó mismunandi vandamál, og hann segir þér í bæði skiptin að það sé ekkert að þér !? (Nei, ég veit! Ég ER fullkomin :) ..næst segi ég bara "Nei, það er eitthvað að þér!" hahaha "Neih, ÞÚ!!" ..drekktu bara heitan vökva og láttu þér ekki verða kalt.... "drekkt´ann sjálf kjélling!" En ég lét hana ekki komast upp með það í seinna skiptið, og bað hana að gjöra-so-vel að láta mig hafa eikkað við þessum hósta sem ég er búin að hafa í 3 vikur eða meira.... who´s counting? ..og fékk astmapúst, eitthvað rándýrt "#$?&#% !!! En hefur lagað hóstann, svo ég er sátt... Það er dýrt að vera óheilbrigður, ég er búin að komast að því... The hard way !!!! ..ákvað samt að sótthreinsa herbergið til að aht hvort það hjálpi til og er búin að vera að því í allt kvöld, ógó dúgleg :D *klappábakið* =)
Jæja, best að hvíla sig og láta sig ekki verða kalt!
Lúlú hin lasna
22september
Jæja, þá er maður orðinn 23 ára... ("nobody likes you when youre 23")
Hélt upp á afmælið mitt í Kaupmannahöfn með Möggu og Svönu :) Það var alveg geggjað! Fórum út að borða á Hard Rock Café, fékk afmælisís og afmælissöng þar og gjöf frá Möggu:) Fékk samt afmælissönginn á dönsku kvöldinu áður í teiti sem ég var í, það var upplifun.. Skrítið að vera staddur annarsstaðar en maður er venjulega á afmælinu sínu... Mömmu fannst það líka, en ég hef alltaf haldið uppá afmælið mitt heima á Íslandi, þangað til núna! Einhverntíma verður allt fyrst.. Ég hjólaði einmitt í fyrsta skipti full í Danmörku - haha!
Við stelpurnar kíktum að sjálfsögðu á kokteilbar og prufuðum nokkra :) Ótrúlega óhæfur þjónn sem afgreiddi okkur, en drykkirnir voru góðir:Þ Daginn eftir var svo farið í Tívolí :D ..fórum nokkrum sinnum í Himmelskibet, það er svo magnað útsýnið þaðan:) og að kvöldi til.... Ummm, om nom nom nom...
Ég vil bara þakka Möggu og Svönu fyrir að taka svona vel á móti mér og fyrir frábæra helgi, ég skemmti mér ólýsanlega vel :D:D ...og Magga, takk fyrir afmæliskökuna og skonsurnar í morgunmat :D Það er erfitt að finna jafn góða vinkonu eins og þig, þótt um heiminn væri leitað :D
Þakka líka öllum þeim sem sendu mér hamingjuóskir á afmælisdaginn :):):)
26maí
Seint skrifa sumir en skrifa þó !
Hahah, ég fór til New York í lok apríl, OMG það var geggjað:D Ég fór með leikskólanum í "námsferð" þannig að við vorum ekki eins lengi og hefði viljað... en.... ógó gaman engu að síður:) Ég, Guðný og Vala fórum svo og hittum Völlu frænku hennar og Söru í Princeton, New Jersey. Það var upplifun að taka lest svona langt.. Það var of gaman hjá okkur, samferðafólki okkar til mikillar mæðu, mögulega! Stefnan var tekin á King of Prussia Mall í Pennsylvania, en það er víst risaverzlunarmiðstöð!! Á leiðinni komum við við á iHop eða hvað sem hann hét, lítill veitingastaður með american pancakes :D Mmmm namm... en úff, ég gat rétt svo borðað eina !! Þetta er ekkert smá mikið! Það er allt huge þarna úti...
17mars
Já, eins og kom fram í síðustu færslu er ég í Ferðamálaskólanum mjög svo gaman, æðislegur bekkur og nóg að gera !!! Enda hef ég ekki bloggað síðan ég var að byrja... núna er ég komin í "páskafrí" eða páska"frí" því það er skoh nóg að gera hjá mér, ritgerðir, hópaverkefni, heimadæmi.... :S
En ég var samt í Berlín með bekknum ó mæ hvað það var geggjað!! Við fórum með þeirri yfirskrift að við værum að fara á ITB sýninguna, sem við gerðum að sjálfsögðu... Hún var ekkert smá flott!!! og STÓR!!! En við sáum líka Berlínarmúrinn, Kínamúrinn, Fernsehturninn, Alexanderplatz, Carambar :) hehe aye caramba! Weekend Club, sem er svona panorama bar... svaðalegt útsýni:)
Jæja, ætla að halda áfram að læra
pís át
15október
...síðan ég hef skrifað eitthvað hér! Enda hef ég ekkert verið að einbeita mér að þessari síðan að myspacið kom og er. Þið þekkjið þetta. En helzta mál á dagská er það að ég er byrjaði í skóla í haust, Icelandic School of Tourism :) hehe Ferðamálaskóla sem sagt ;) Það er ekkert smá gaman og mjög skemmtilegur bekkurinn minn.. og hugsiði ykkur, ég er yngst í bekknum !! Litla örverpið hahaha... Nei, nei ég er mjög heppin það eru þrjár aðrar á svipuðum aldri og ég annarz er þetta bara 30+ 40+ og kannzki 50+ ? ég er ekki alveg klár á þessu ;) haha
En slæmu fréttirnar eru þær að bíllinn minn lét lífið í gær... Já, hann neitaði að fara í gang.. og ég þóttist nú vita að þetta væri ekki rafgeymirinn.. Pabbi komst svo að því að altenatorinn er gjörónýtur, hann hleður ekki rafgeyminn :/ booring... en talandi um pabba, hann á afmæli í dag :D Til hamingju með afmælið elsku pabbi minn :* og takk fyrir alla hjálpina með bílinn minn :D
Jæja ég verð að fara baka köku eða læra eða eikkað álíka gáfulegt ;)
Ciao
Lúlú
30maí
Jæja helgin liðin og næsta helgi á næsta leiti - haha :D
En váh það var sjúklega yndislegt að komast aðeins úr bænum ... mmmm namm :D
Föstudagurinn: Gat ekki beðið eftir að hætta að vinna - úff það var erfitt ! Brunaði svo strax eftir vinnu, kyssti mömmu og pabba bless, pikkaði upp Svönu og hélt af stað upp í sveit :D jeij !! Dalsmynni, here we come !!! Þar biðu okkar Jóna, Mía, Guðrún og síðast en ekki síst hún Bubba :) Hörkustuð, duttum strax í það.. Fórum í singstar, heita pottinn og bólið mmmmm.. ég sofnaði reyndar bara yfir Something´s gotta give í sófanum... Vaknaði límd við leðrið... næs :Þ
Laugardagur: Vakna límd við leður mmmm namm.. Fannst ég eiga skilið að fá einn Calla.. Kláraði Something´s gotta give.. Lagðist svo út í sólbað með stelpunum, tók 60x setjast - standa upp á trampólíninu, fór svo inn og steinsofnaði í 4 tíma... ein búin á því :Þ Man bara næst að ég er komin aftur á Trampólínið - Vúvú!!!! :D Svo komu Magga og Hrönn og við grilluðum ljúffengar kjúklingabringur ohhh namm *slef* svooooo goooott :D Svo var bara +actionary út á palli.. Þurftum reyndar að hætta vegna veðurs, það var bara hreinlega orðið of kalt brrr :S Þá fórum við bara í Buzz og Singstar og pottinn.. það sem gerðist í pottinum, stays in the yub - say no more !!
Sunnudagur: Ég svaf endalaust út.... Zzzz :D svo yndislegt að vera laus við allar áhyggjur og geta sofið út og bara gert það sem maður vill... Strákarnir komu um kveldið.. Ég man voða lítið hvað gerðist þetta kvöld, man bara að ég lá mjööög lengi í pottinum og Mía braut glas með miklum tilþrifum.. Hrönn var að markaðsetja bílaparty.. haha Ari og Helgi að tala um markaðsetningu og sölutrix ofl meðan Jóna og Svana sátu sætar og horfðu á ;) - nánast :D híhí
Mánudagur: Þynnnnnka úff... Þunn að þrífa bústaðinn... jáh, það var algjört æði :S - NOT! Og að drepast úr harðsperrum eftir trampólínið
Þriðjudagur: Fór í magaspeglun í dag - haha það var fyndið.. Þegar hjúkkan fann loksins æð til að sprauta í mig róandi og ætlaði að deyfa hálsinn, tók hún eftir tungulokkinum.. Og ég þurfti að fjarlægja hann.. Það varð heldur betur skrautlegt.. Komin á róandi og slefandi eins og vitleysingur, tókst mér þó að losa hann... Og ég fékk að sjá allt sem maður á ekkert að sjá :D hehe
- Lúlú, Buzzmaster :D
13maí
Vúvú :D
Loksins er sumarið að koma :)
Ég var að koma úr Bláa Ljóninu.. hehe nei Lóninu :D Ég, Bubba og Svana skelltum okkur og áttum góðan dag þar mmmm :) Fuuuuulllt af úglendingum úff.. "Hello, ladies!" og "Sæt" og fengum ekki að liggja í friði! Klárlega heitar stelpur ;) Svo fengum við okkur að borða og mmm namm namm góður matur :D mæli klárlega með staðnum :)
Ég sagði rooosalegan brandara um daginn.. Pabbi kemur inn til mín einn morguninn og spyr mig hvort að ég ætli nokkuð að sofa yfir mig.. "Nei, pabbi! Ég ætla að sofa undir mig!!!" . . . Og ég svaf yfir mig.. klárlega.. Og ekki nóg með það.. allt of sein sit ég bílnum heyri ég lag sem minnir mig rosalega á vinnuna síðasta sumar! Og fer í hoppandi stuð! Og tek vitlausa beygju eins og ég sé að fara í vinnuna sem ég var í síðasta sumar!! Ég er sem sagt komin hálfa leið inn í breiðholtið þegar ég átta mig á mistökunum... vúpsí!! Jæja, það þýðir ekkert að hringja í vælubílinn.. :Þ Og á leið minni i gegnum breiðholtið sé ég gamla bimmann hans Magga vúvú.. Ég hef samt aldrei seð gamla bílinn minn :S grát grát!
- Lúlú, klár í sumarið !
08maí
Jæja...
Ég var í nokkra tíma upp á bráðamóttöku í gær.. eða gjörgæslunni eins og ég kallaði þetta óvart og lét móður mína næstum því fá hjartaáfall hehe "Ég kem ekki strax heim er með Bubbu upp á gjörgæslu! Hún er með brotna tá eða eikkað" Mamma hringdi og hélt að táin væri dottin af.. Æ, svona getur misskilningur verið skemmtilegur :) Anyways, Bubba kvarnaði bara uppúr kjúkunni.. það var ekki alvarlegra en það.. Bubba hélt samt að hann hafði sagt "Þú varst með læti hjá hjúkkunni! Hahahaha "Þú ert búin að kvarna úr kjúkunni!" ÉG beið eftir því að hún myndi segja eikkað eins og .. "Haa? Er ég fatlaður kjúklingur?" en hún áttaði sig sem betur fer að segja bara "haa!" hehe Bubba, alltaf að læra ;)
Jájá!
Svo fór laugardagurinn í óvissu hjá mér, en ég fór í 2 óvissuferðir :D snilld! Byrjaði á því að vera hérna upp í leikskóla á Opnu húsi, kynna vinnuna frá því í vetur .. very næs... Svo fórum við í óvissuna, eða grilluðum big burgers, fórum að mála keramikbolla á laugarveginum.. Svo stakk ég af og fór í óvissuferð hagkaupa :) Rúta kom upp í hagkaup og sótti okkur og við vorum að djúsa og syngja þar.. æðisleg rútustemmari :D Enduðum við Úlfljótsvatn, (Græna byltingin !) og nokkrir hressir skátastrákar tóku á móti okkur :P fóru með okkur í leiki eins og puttastríð og sverðaleik og blah.. maniggi.. Og svo grilluðu þeir fyrir okkur og svo fórum við í klifurvegginn... :S Je minn einasti ég hélt að það yrði mitt síðasta.. Ég er klárlega lofthræddasta manneskja Íslands, en var samt búin að ákveða að fara upp... (ætli það hafi ekki verið ölið að ákveða það).. og það voru margir búnir að fara og ég ákveð svo bara jæja, ég skelli mér bara upp.. How hard can it be? Hmmmm... Ég og Bubba fórum samsíða og´mér gekk geggjað vel, þangað til ég heyrði fólkið hvetja mig áfram... þá leit ég óvart niður.. vúps! Og ég trylltist gersamlega! Var btw búin að segja strákunum að ég væri sjúklega lofthrædd.. En nei nei, þeir ætluðu sko ekki að hleypa mér niður.. þeir byrjuðu að hífa mig hærra upp, en ég spyrnti mér alltaf niður og var svo það fari ekki framhjá neinum öskrandi af hræðslu.. ÉG vildi niður, takk fyrir! Þeir létu þar ekki við sitja, heldur kemur Kolbeinn og klifrar á eftir mér og tekur mig á háhest!!!! Uppi á veggnum!!!! Ég hélt að ég væri geðbiluð... hvað þá hann!? Og hann var ekki í öryggislínu!!! Ég man eila lítið hvað gerðist eftir það nema að ég man eftir að ég er komin niður og get ekki staðið í lappirnar ég skelf svo mikið.. Kolbeinn heldur mér bara uppi.. en ég lek niður aftur á jörðina og ligg þar... Hélt að nú væri ég safe and sound on the ground... O, nei... Þeir kippa í línuna, þar sem ég ligg og ég kippist lárétt upp í loft svona reyndar bara meter upp ca en samt.. rólegir á eineltinu!! :P *blah* Þetta var samt geggjað gaman.. en shit, ég var alveg að gera í buxurnar ég var svo smeyk... Úff!
En svo var bara tussugaman í ferðinni.. Bara svona eins og upphitun fyrir Þjóðhátíð :D
- Lúlú, orðin skíthrædd við skáta
16apríl
Úff hvað það var gaman í fóbó í gær :D það kom brjál rigning þegar við vorum og mér finnst rigningin góð lalalala ooóóó !! Vúvú! ;) hehehe Ég og magga erum klárlega bestu kantar ever :D Hrönn fær samt ekkert kredit enda sat hún bara inní bíl allan tímann pfiff ;Þ
Heyrðu svo vildi það til að ég vaknaði í morgun.. leit á klukkuna, hún var hálfátta, og ég alveg "Mmmm, ég get sofið lengur ég þarf ekki að mæta fyrren hálfníu.." Nei, nei, kemur ekki móðir mín eins og stormsveipur inn um dyrnar æpandi! "Anna Lilja, ertu ekki vöknuð!? Þú verður alltof sein!" ég alveg.. Vó, slakaðu á woman! En þá mundi ég að ég átti víst að mæta í cp-skann eða eikkað upp í orkuhús kl 8.. Oohh ekkert sofa meira hjá mér neitt :/ blah! Uhm oh nei nei, og ekki fór þetta batnandi.. Ég þurfti að drekka ógeðsdrykk í boði hússins, Orkuhússins og ég hélt að ég yrði ekki eldri.. ég ætlaði aldrei að koma honum niður.. ég kúgaðist og kúgaðist :/ ugh! Ímyndið ykkur .. uhm ok þið vitið hvernig skápalykt er, ekki? Og ímyndið ykkur að drekka vanillushjeik, ekki beint kaldan, með skápabragði og kuski... UGH!! Það tók mig 45mín að koma þessu niður án þess að æla því.. Mkay.. þá hélt ég að erfiðasti hjallinn væri á enda.. NEI NEI, gellan á í einhverju basli með að ná að koma sprautunni án þess að stinga í gegnum handlegginn!!! Eða æðarnar ugh!!! Og ég með mína sprautufælni.. Aaaaa MAMMA!!! Ég er sem sagt með 4 göt á handleggjunum.. Very næs.. NOT! Svo er þetta alveg stórfurðulegt þegar liturinn fer í gegnum mann.. Manni hitnar á hálsinum og upp í höfuð og á milli læranna.. Tilfinning er sem sagt eins og það sé að líða yfir þig meðan þú ert á pissa á þig ! Ekki var það til að toppa ástandið haha.. en allt er gott sem endar vel! Mæli samt ekki með að fara í þetta ;)
- Lúlú, spítalamatur !
15apríl
Eruði að grínast hvað það var sjúklega gaman um helgina!! :D
Á föstudeginum þrettánda vorum við heima hjá Hrönn bara fámennt, en góðmennt að dreypa á smávegis freyðivíni og öli.. Skelltum okkur svo í bæinn þar sem var ekkert að gera!!? Býst við því að allir háskólakrakkarnir væru að undirbúa sig fyrir prófin.. hmmm? Ég veit ekkert um það :Þ ekki er ég í H-skólanum... anyways ég og Gísli sátum saman og horfum á misgóðar tilraunir karlpeningsins að reyna að fá Hrönn með sér heim sem stóð eggjandi við barinn ;) haha það var eila hálfsorglegt að horfa upp á þetta.. en fyndið engu að síður :D hehe Hittum svo Hrebbnu á Sólon þar sem við stunduðum smávegis dilladilla :D Og svo lá leið á Hressingarskálann - klárlega! Hann var yfirpakkaður af útlenskum gaurum sem vildu ólmir fá okkur til að dansa.. við vorum ekki beint á dansskónum þá.. úff! nei nei ! Svo fórum við Hrönn bara heim og hún ætlaði að panta pizzu.. þegar hún loksins náði sambandi við opinn stað og búin að spurja um verðið á öllu mögulegu, kom það í ljós að það var 2 tíma bið eftir pizzunni.. Hrönn sagði bara nei takk frekar fæ ég mér skoh beyglu!!! Og fór í frystinn og náði í nokkur croissant og skellti í ofninn, henti ofnplötunni óvart í gólfið og hótaði að kenna mér um ef að pabbi hennar skildi vakna - haha takk Hrönn ;)
Svo á laugardaginn var að sjálfsögðu söngvakeppnin þar sem Addi okkar var að taka þátt :D Við ætluðum Norður sem hefði verið geðveikt en við fengum enga gistingu og ákváðum það yrði of dýrt :P anyways við hristum bara upp í hópnum og hittumst öll heima hjá Púlla og það varð allt vitlaust þegar Addi steig á sviðið!!! Þetta var þrusuflott hjá kallinum og ég skil ekki af hverju hann vann þetta bara ekki ? hmm? En það var fullt af öðrum flottum flytjendum og ég er rosa stolt af Adda og ingunni að hafa náð í annað sætið :D þrusuflottur árángur :D:D:D Og til hamingju enn og aftur Addi minn :*:*:*
Við létum ekki þar við standa og skelltum okkur niður í bæ þar sem við héldum áfram að fagna kappanum !! Byrjuðum á Sólon, dilladilla þangað til svitinn bogaði af okkur!! Færðum okkur svo á Prikið eða Rósenberg wtf? þar hitti ég Smára long time, no see ! Geggjað gaman að hitta á hann :D Ennenntum ekki að vera þar, skunduðum á Hvebbann sjúklega gaman!! Það komu tveir sjúklega skemmtilegir gaurar á borðið til okkar og ég og Magga gátum ekki hætt að hlæja að þeim, eða með þeim.. ;) O, jæja ekki nóg með það að vera búin að hlæja með þessum gaurum í 2 tíma eða svo.. þá hittum við Bjarna töframann á Lækjartorgi.. Ég og Magga í mesta sakleysi okkar að fá okkur pulsu þegar ég heyri undarlegt hljóð og segi við Möggu "Heyrðiru í hrossagauknum?" Mér fannst nebbla hálfundarlegt að heyra í hrossagauki á lækjartorgi kl 6 um morgun.. Magga lítur upp til himins og þá heyrist aftur þetta undarlega hljóð.. Ég veit ekki hvert við ætluðum við veinuðum af hlátri þegar við áttuðum okkur á hvaða hljóð þetta var... Bjarni Töframaður að leika Chewbacca hahahahahahahaah :D:D:D ég er að segja ég get ekki alveg líst ykkur hvernig mér líður í maganum, en ég er allavega með mjög miklar harðsperrur.. úff! En jæja fóbóæfing ;)
- Lúlú, sjúklega skemmtileg !!!